17.1.2009

Viltu vinna milljarð? (Slumdog millionaire)

Bíóbrotið í upphafi Kviku að þessu sinni er úr myndinni Slumdog Millionaire eða Viltu vinna milljarð? Mynd sem nú hefur verið frumsýnd í kvikmyndahúsum hér á landi og Kvika hvetur alla til að sjá. Fjórir gullhnettir komu í hennar hlut fyrir tæpri viku, myndin var verðlaunuð sem besta mynd, Danny Boyle fékk leikstjórnarverðlaunin og myndin fékk líka hnetti fyrir handrit og tónlist.

Gullhnötturinn er veittur kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem þykja skara fram úr í ársbyrjun. Það eru Samtök erlendra fjölmiðla í Hollywood sem hafa staðið fyrir þeim gjörningi í 66 ár. Hátíðin er yfirleitt skrautsýning hin mesta og litið á hana sem upptakt fyrir Óskarinn enda fá oft sömu myndir og leikarar helstu verðlaun. Viltu vinna milljarð? hefur verið tilnefnd til 11 BAFTA verðlauna, sem verða afhent í febrúar, meðal annars fyrir kvikmyndatöku.

Á Golden Globe hátíðinni eru ekki veitt verðlaun fyrir kvikmyndatöku en það kæmi mér sannarlega ekki á óvart ef Viltu vinna milljarð? yrði tilnefnd fyrir töku á óskarnum. Hún byggir samnefndri metsölubók eftir Vikas Swarup, bók sem fór frægðarför um heiminn. Þegar gerðar eru myndir eftir slíkum sögum fyllist maður jafnan efasemdum en að þessu sinni hefur Danny Boyle tekist að skapa stjálfstætt listaverk þar sem allt það sem einkennir góða kvikmynd fær að njóta sín. Ábyggilega hefur þar mikið að segja að hann fær til liðs við sig mikinn fjölda Indverja, bæði aðstoðarleikstjóra sem þekkir Bollywood hefðina og aldeilis frábæra leikara á öllum aldri.

Myndin fylgir bókinni ekki nákvæmlega, aðalpersónan heitir til dæmis ekki Ram Mohammad Thomas heldur Jamal Malik  og  er ekki yfirheyrður af kvenlögfræðingi án þess að ég fari nánar út í það hér. Viltu vinna milljarð? segir sögu munaðarleysingja sem berjast við að halda lífi í einu stærsta fátækrahverfi heims og er saga af ótrúlegri sjálfsbjargarviðleitni og um leið falleg ástarsaga og hugleiðing um örlög. Hvort þau eru óumflýjanleg eða hvort við getum stjórnað hvaða stefnu líf okkar tekur. Fléttan er frumleg og heldur manni föngnum frá upphafi til enda í þessari ljúfsáru mynd. Í ofanálag hún sjónrænt svo falleg að mig langaði strax til að horfa á hana aftur. Þó að maður fái sting í hjartað yfir fátækt og mannvonsku er fegurðin ótrúleg, form, litir og tónlist.  

Viltu vinna milljarð er ekki Bollywood mynd, persónurnar bresta ekki í söng upp úr þurru eða dansa en að margt er þó sótt í hefðina - ástarþemað auðvitað dæmigert og ýmsar skemmtilegar vísanir samanber lokaramma myndarinnar.

Kvika 17. janúar 2009

 

Til baka

    Senda síðu