Síða 1 af 35  |   <<     >>


22.7.2010

Kvika 24. júlí 2010

Brúðkaup hafa ætíð verið vinsælt viðfangsefni í kvikmyndum eðli málsins samkvæmt. Ef vel tekst til fer þar saman ást, gleði og fegurð, jafnvel svolítil togstreita og spennuhlaðið andrúmsloft. Brúðkaupsmyndir eiga það svo flestar sameiginlegt að innihalda dillandi fjöruga tónlist. Kvika segir m.a. frá myndum eins og Brúður og hleypidómar, Mamma Mia, Brúðguminn, Svartur köttur, hvítur köttur og Fjögur brúðkaup og jarðarför.

 

Meira

 

22.7.2010

Kvika 17. júlí 2010

Myndirnar sem Kvika rifjar upp að þessu sinni eiga það sameiginlegt að vera gerðar af kraftmiklum konum auk þess sem náttúran er í stóru hlutverki í báðum myndunum. Þetta eru þýska myndin Hvergi í Afríku eftir Caroline Link og Whale Rider eftir hina nýsjálensku Niki Caro. Gestur þáttarins er hins vegar Ásgrímur Sverrisson sem ræðir við okkur um Regnbogann, framtíðarheimili kvikmyndanna.

 

Meira

 

9.7.2010

Kvika 10. júlí 2010

Ný íslensk spennumynd, Boðberi, var frumsýnd á dögunum. Leikstjóri myndarinnar er Hjálmar Einarsson og hann er gestur Kviku. Eins og oft áður í sumar verða rifjaðar upp myndir sem tengjast þessum árstíma. Myndirnar sem eru til umfjöllunar að þessu sinni eru báðar ítalskar, Gullið í Napólí frá 1954 og Respiro frá 2002.

 

Meira

 

9.7.2010

Kvika 3. júlí 2010

Rómantíkin svífur yfir vötnum í Kviku að þessu sinni. Í þættinum verður fjallað um pör á hvíta tjaldinu sem hafa kallað frá tár á hvarmi áhorfenda. Ást í meinum, forboðin ást og ást og dauði, allt eru þetta vinsæl þemu í kvikmyndasögunni. Myndir eins og Rauða myllan, Casablanca, Ástin ber að dyrum, Fjallið Ölduhryggur og Doktor Zhivago koma við sögu í þættinum.

 

Meira

 

9.7.2010

Kvika 26. júní 2010

Gestur Kviku að þessu sinni er ung leikkona. Hún heitir Guð Lára Árnadóttir og útskrifaðist nýverið frá Kvikmyndaskólanum í Prag. Í þættinum verða líka rifjaðar upp myndir þar sem sumarhiti ýmist vermir eða tryllir. Myndirnar eru My Summer of Love, eða Sumarást, eftir pólska leikstjórann Pawel Pawlikowski og Summer of Sam eftir Spike Lee.

 

Meira

 


    Senda síðu