|
26.12.2009
|
|
|
|
|
|
DIRI – Himnabörn – lag – 3:11
Þessi fallega tónlist er úr kvikmynd frá Íran.
Bacheha-Ye aseman eða Himnabörn nefnist hún og er ein besta barna- og fjölskyldumynd sem ég hef séð. Myndin stendur alveg fyrir sínu sem fullorðinsmynd, en um að gera að njóta hennar með börnunum sínum. Himnabörn er eins og áður sagði frá Íran og kom út árið 1997. Leikstjóri er Majid Majidi og aðalhlutverk leika Mohammad Amir Naji, Amir Farrokh Hashemian, Bahare Seddiqi, Nafise Jafar-Mohammadi og Fereshte Sarabandi.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
4.11.2009
|
|
|
|
|
|
DIRI – Cool Down Yonder – Marion Williams – 3:11
Þetta er Cool Down Yonder með Marion Williams. Bíólag dagsins var flutt í kvikmyndinni Steiktir grænir tómatar frá árinu 1991.
Kvikmyndin er byggð á metsölubók eftir Fannie Flagg, sem kom fyrst út árið 1987. Síðan þá hafa margir velt fyrir sér hvernig steiktir grænir tómatar væru á bragðið. Og nú breytum við aðeins út af venjunni í pistli um bíólagið og birtum uppskrift. Tómatarnir eru grænir vegna þess að þeir eru lítt þroskaðir en það mun einnig vera hægt að nota tómata í þessa uppskrift þó þeir séu aðeins byrjaðir að þroskast, orðnir svolítið bleikir.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
2.10.2009
|
|
|
|
|
|
Söngur Gabrielu heitir þetta fallega lag sem heyrist hér undir. Það er úr sænsku kvikmyndinni Så som i himmelen eða Sem á himni frá 2004. Með aðalhlutverk fer Michael Nyquist en hann leikur líka nafna sinn Blomkvist í myndum sem gerðar eru eftir sakamálasögum Stieg Larson, svona fyrir þá sem þekkja ekki nafnið.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
10.9.2009
|
|
|
|
|
|
Lagið sem við hlustum á í dag hefur í hugum flestra tengst kvikmyndinni Cat People, Kattarfólkið, frá árinu 1982 með Natssja Kinski í aðalhlutverki. Myndin sú hefur nú ekki elst sérstaklega vel og varla minnisstæð fyrir annað en fegurð aðalleikkonunnar og lagið Putting Out Fire, sem David Bowie syngur af mikilli innlifun. Og nú hefur þetta lag fengið annað líf í kvikmyndasögunni. Hinn sérstaki og umdeildi snillingur, Quentin Tarantino lætur það hljóma undir atriði í nýjustu mynd sinni Inglourious Basterds, þar sem aðalpersónan, gyðingastúlkan Shosanna, skrýðist rauðum kjól og stríðsmálar sig áður en hún ræðst til atlögu við Nazistana með „tja eigum við ekki að segja kvikmyndina eða allavega filmuna“ að vopni. Tarantino er sennilega eini leikstjórinn sem er nógu frakkur og ögrandi til að nota - í fyrsta lagi lag sem áhorfendur tengja sterkt við aðra kvikmynd -og í öðru lagi, lag frá 1982 í atriði sem á að gerast 1944.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
3.9.2009
|
|
|
|
|
|
Bíólag dagsins heitir Ani k stáru og er úr tékknesku myndinni Vratné Lahve, eða Tómar, sem sýnd var hér á kvikmyndahátíð í hitteðfyrra. Myndin er eftir feðgana sem gerðu Kolja, sæta mynd sem margir muna eftir og fékk Óskarinn sem besta erlenda mynd árið 1996. Nánar um það síðar. Zdenek Sverak er aðalleikari og handritshöfundur myndarinnar Vratné Lahve en Jan Sverak sonur hans leikstýrir. Tómar fjallar um kennarann Josef, sem er að komast á eftirlaun. Hann þolir ekki lengur ungmennin, missir stjórn á skapi sínu og verður að hætta að kenna. Á sjötugsaldri er hann samt fullur orku, alls ekki tilbúinn til að setjast í helgan stein og fær starf við að taka á móti flöskum til endurvinnslu í stórmarkaði. Þannig hittir hann fullt af fólki og fær útrás fyrir samskiptaþörfina.
|
|
|
Tómar
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|