|
28.9.2009
|
|
|
|
|
|
Við heyrðum brot úr nokkrum mynda heiðursverðlaunahafa Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar að þessu sinni, Milos Forman. Brot úr Veislu slökkviliðsmannanna, Amadeus, Gaukshreiðrinu og Karlinn í tunglinu. Kvika varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að ræða við kappann á dögunum og hann hafði frá mörgu að segja. Viðtalið fer hér á eftir.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
28.3.2009
|
|
|
|
|
|
Tónskáldið Nico Muhly fæddist í Vermont árið 1981 en er uppalinn í Providence á Rhode Island. Nico lærði enskar bókmenntir í Columbia háskólandum og útskrifaðist þaðan árið 2003. Ári síðar lauk hann mastersgráðu í tónsmíðum frá Juilliard tónlistarskólanum. Hann er fjölhæfur tónlistarmaður og hefur semur jafnt hljómsveitarverk og tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir - og hefur unnið með tónlistarmönnum eins og Valgeiri Sigurðssyni, Björk og Philip Glass. Kvika hitti Nico Muhly á dögunum og spurði hann fyrst hvort hann hefði alltaf ætlað að verða tónlistarmaður.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
7.2.2009
|
|
|
|
|
|
Vladan Petkovic heitir ungur kvikmyndarýnir frá Serbíu. Hann er tíðindamaður fyrrum Júgóslavíu fyrir breska kvikmyndaritið Screen International, þýðir kvikmyndir sem sýndar eru í kvikmyndahúsum og vinnur fyrir kvikmyndahátíðir. Þegar Kvika náði af honum tali var Vladan önnum kafinn við að njóta íslenskra stuttmynda, sem gerðar hafa verið undanfarin ár. Ástæðan er sú að hann velur nú myndir sem sýndar verða á Kratkofil stuttmyndahátíðinni í Bosníu en Ísland verður í brennidepli í ár því Bræðrabylta Gríms Hákonarsonar sigraði í fyrra. Það voru hins vegar myndir frá Balkan skaganum sem ég hafði áhuga á að ræða um við Vladan og spurði hann fyrst hvort hægt væri að benda á eitthvað sem myndir frá þessum heimshluta ættu sameiginlegt.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
24.1.2009
|
|
|
|
|
|
Frakkinn Luc Jacquet, sem vakti heimsathygli fyrir mynd um göngu Keisaramörgæsa árið 2005 kom hingað til lands á Frönsku kvikmyndahátíðina sem nú stendur yfir til að vera við sýningu á nýjustu mynd sinni, sem er ævintýri um litla stúlku sem vingast við ref. Ég hitti Luc að máli á áttundu hæð húss hér í höfuðborginni, veðrið var einkar fagurt og hann dáðist að Esjunni sem blasti við út um gluggann. Ég spurði hann fyrst að því hvernig það hefði gerst að líffræðingur fór að taka kvikmyndir.
|
|
|
Luc Jacquet
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
24.10.2008
|
|
|
|
|
|
Myndin Il y a longtemps que je t'aime eða Ég hef lengi elskað þig var sýnd hér á kvikmyndahátíð við góðar undirtektir. Höfundur myndarinnar, rithöfundinn Philippe Claudel, kom hingað til lands af því tilefni og sat meðal annars fyrir svörum í Norrænahúsinu.
Philippe Claudel, er fæddur árið 1962 og auk þess að skrifa bækur og gera kvikmyndir er hann bókmenntakennari við háskólann í Nancy. Kvika leit inn á hádegis-spjallið og heyrði hann meðal annars tala um muninn á því að skrifa bók og kvikmyndahandrit.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|